Chapter 5
1 Annað, sem vert er að muna, er að enginn getur orðið æðsti prestur vegna þess eins að hann hafi áhuga á því. Hann verður að hafa fengið köllun frá Guði, engu síður en Aron.
2 Þess vegna tók Kristur sér ekki sjálfur þann heiður að verða æðsti prestur. Það var Guð, sem útnefndi hann. Guð sagði við hann: „Sonur minn, ég er faðir þinn."
3 Í annað sinn sagði Guð við hann: „Þú ert kjörinn til að vera prestur að eilífu og fá sömu tign og Melkísedek."
4 Þrátt fyrir þetta, bað Kristur til Guðs meðan hann var hér á jörðu. Grátandi og angistarfullur bað hann til Guðs, sem einn gat frelsað sál hans frá dauða. Bænir hans voru heyrðar, vegna þess að hann kappkostaði að hlýða Guði í einu og öllu.
5 En þótt Jesús væri sonur Guðs, varð hann samt að þola þjáningar, því að þannig lærði hann hlýðni.
6 Og þegar Jesús hafði staðist próf hlýðninnar, varð hann öllum þeim, sem honum hlýða, gjafari eilífs hjálpræðis.
7 Munum að Guð útnefndi hann til æðsta prests með sömu tign og Melkísedek.
8 Ég gæti sagt margt fleira um þetta, en það er ekki auðvelt að útskýra það fyrir ykkur, því að þið eruð svo skilningssljó.
9 Þið munuð aldrei geta borðað „andlega kjarnafæðu" og skilið dýptina í orði Guðs, nema þið vaxið í trúnni og lærið að greina gott frá illu, með því að leggja stund á hið góða.
