Chapter 111
1 Því að máttarverkin lýsa mikilleika hans, hátign og eilífum kærleika.
2 Hver getur gleymt dásemdarverkum hans, miskunn hans?
3 Hann annast þarfir þeirra sem honum treysta og gleymir ekki loforðum sínum.
4 Hann sýndi mátt sinn er hann gaf þjóð sinni landið Ísrael – land sem margar þjóðir byggðu.
5 Allt gerir hann af trúfesti og réttlæti og öll fyrirmæli hans eru áreiðanleg og góð,
6 gefin í kærleika og af réttvísi – þau munu standa að eilífu.
7 Hann hefur frelsað þjóð sína og gert við hana eilífan sáttmála. Heilagt og óttalegt er nafn Drottins.
8 Hvernig öðlast menn visku? Með því fyrst að óttast og heiðra Guð og síðan með því að halda lög hans. Lofað sé nafn hans að eilífu.
