Chapter 21
1 Því að þú hefur veitt honum það sem hjarta hans þráir, allt sem hann bað þig um!
2 Þú leiddir hann til valda og veittir honum velgengni og blessun. Þú krýndir hann kórónu úr gulli.
3 Hann bað um langa ævi og góða daga og þú heyrðir bænir hans. Ævidagar hans munu aldrei taka enda!
4 Frægð og frama gafst þú honum, íklæddir hann vegsemd og dýrð.
5 Þú veitir honum eilífa blessun og gleður hann með nærveru þinni meira en orð fá lýst.
6 Konungurinn treystir Drottni og því mun hann aldrei hrasa né falla. Hann reiðir sig á elsku og trúfesti þess Guðs sem er æðri öllum guðum.
7 Drottinn, hönd þín mun ná öllum óvinum þínum og hatursmönnum.
8 Samsæri hafa þeir gert gegn þér Drottinn, en það mun ekki takast.
9 Þegar þeir sjá boga þinn spenntan, flýja þeir sem fætur toga.
10 Drottinn, þinn er mátturinn og dýrðin! Heyr þú lofgjörð okkar! Um máttarverk þín syngjum við og kveðum!.
