Chapter 97
1 Drottinn er konungur! Allur heimurinn gleðjist! Fagnið þið eyjar við ysta haf!
2 Tignarleg ský umlykja hann. Réttlæti og réttvísi eru undirstöður hásætis hans.
3 Eldur gengur út frá honum og eyðir öllum óvinum hans.
4 Elding hans leiftrar og lýsir upp jörðina. Heimurinn skelfur af ótta.
5 Fjöllin bráðna eins og vax fyrir Drottni.
6 Himnarnir kunngera réttlæti hans og allar þjóðir sjá dýrð hans.
7 Allir skurðgoðadýrkendur verða til skammar – þeir sem stæra sig af falsguðum – því að allir slíkir guðir verða að beygja sig fyrir Drottni.
8 Drottinn elskar þá sem hata hið illa. Hann verndar líf fylgjenda sinna og frelsar þá undan óguðlegum.
9 Ljós skal lýsa hinum réttlátu og gleði hlotnast hinum góðu.
10 Allir réttlátir fagni fyrir Drottni og vegsami hans heilaga nafn.
