Sálmarnir

Chapter 47

1 Drottinn er æðri öllum guðum. Hann er ógurlegur. Honum verður ekki með orðum lýst. Hann er konungur til endimarka jarðarinnar.

2 Hann hefur beygt þjóðir undir sig

3 og valið úr yndislegt land og gefið okkur, þjóð sinni, Ísrael.

4 Guð er stiginn upp með miklu hrópi og hvellum lúðurhljómi.

5 Hann ríkir yfir þjóðunum. Hann situr á hásæti sínu.

6 Leiðtogar heimsins koma og taka undir lofgjörðina með lýð Guðs Abrahams. Skjaldarmerki þjóðanna eru sigurtákn hans. Hann er mjög upphafinn. Hann er konungur alls heimsins.