Sálmarnir

Chapter 46

1 Þess vegna óttumst við ekki, þótt heimurinn farist og fjöllin steypist í hafið.

2 Hafið æði og freyði, fjöllin nötri og skjálfi!

3 Lækir gleðinnar streyma frá borg Guðs – frá heilögum bústað Guðs hins hæsta.

4 Hér býr Guð, hún mun ekki haggast. Þegar þörf er á, kemur Guð henni til hjálpar.

5 Þjóðir risu upp og létu ófriðlega en þegar Guð talaði varð heimurinn að þagna og jörðin nötraði.

6 Drottinn, hann sem ræður hersveitum himinsins, er hér! Hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er kominn til að hjálpa.

7 Komið og sjáið máttarverk hans á jörðinni.

8 Hann stöðvar styrjaldir um víða veröld, brýtur vopnin og kastar á eld.

9 „Þögn! Standið kyrr! Vitið að ég er Guð! Allar þjóðir heims syni mér lotningu."

10 Drottinn hersveita himinsins er hér, hann er á meðal okkar! Hann, Guð Jakobs, er hér til að frelsa!