Sálmarnir

Chapter 85

1 og fyrirgefið syndir þjóðar þinnar, já, hulið þær allar!

2 Reiði þína hefur þú líka dregið í hlé.

3 Dragðu okkur nær þér svo að við getum elskað þig heitar, að þú þurfir ekki að reiðast okkur á ný.

4 (Eða mun reiði þín vara að eilífu, frá kynslóð til kynslóðar?)

5 Lífgaðu okkur við, þjóð þína, svo að við getum aftur lofað þig.

6 Leyfðu okkur að njóta elsku þinnar og gæsku, ó Guð, og veittu okkur hjálp þína.

7 Þegar Drottinn talar til þjóðar sinnar, hlusta ég vel, þegar hann ávarpar sinn útvalda lýð. Hann flytur okkur frið og velgengni þegar við snúum hjörtum okkar til hans.

8 Vissulega njóta þeir hjálpar hans þeir sem hlýða honum og heiðra hann. Velgengni og blessun hans mun breiðast yfir allt landið.

9 Miskunn og sannleikur munu mætast, réttlæti og friður kyssast!

10 Trúfestin eflist á jörðu og réttlætið brosir frá himni!

11 Drottinn blessar landið og það ber margfalda uppskeru.

12 Réttlæti og friður fylgir Drottni.