Chapter 39
1 „Drottinn, fæ ég aðeins að lifa örfá ár í viðbót?
2 En á hvern vona ég þá? Drottinn, ég vona á þig!
3 Frelsa mig frá syndum mínum svo að heimskingjarnir hafi mig ekki að spotti.
4 Drottinn, ég þegi því að þú hefur talað. Ég vil ekki kvarta, því að þú hefur refsað mér.
5 Drottinn láttu refsingu þína taka enda – ég þoli ekki meira!
6 Þegar þú hirtir manninn vegna synda hans, þá er nánast úti um hann. Hann er sem mölétin flík, já, hann líður burt eins og gufa.
7 Heyr þú bæn mína, Drottinn, hlustaðu á hróp mitt! Vertu ekki hljóður við tárum mínum. Mundu að ég er gestur hér, förumaður á þessari jörð eins og forfeður mínir.
8 Miskunna þú mér, Drottinn og læknaðu mig. Lofaðu mér aftur að sjá glaðan dag áður en ég dey.
