Sálmarnir

Chapter 65

1 Þú heyrir bænir og því leita allir menn til þín.

2 Margar freistingar urðu mér að falli, ég gerði margt rangt, en þú fyrirgafst mér allar þessar syndir.

3 Sá er heppinn sem þú hefur útvalið, sá sem fær að búa hjá þér í forgörðum helgidóms þíns og njóta allsnægta í musteri þínu.

4 Með krafti þínum sýnir þú réttlæti þitt, þú Guð, frelsari okkar. Þú ert skjól öllum mönnum, allt að endimörkum jarðar.

5 Þú reistir fjöllin í mætti þínum,

6 þú stöðvar brimgný hafsins og háreysti þjóðanna.

7 Þeir sem búa við ysta haf óttast tákn þín og austrið og vestrið kætast yfir þér!

8 Þú vökvar jörðina og eykur frjósemi hennar. Ár þínar og uppsprettur munu ekki þorna. Þú gerir jörðina hæfa til sáningar og gefur þjóð þinni ríkulega uppskeru.

9 Með steypiregni vökvar þú plógförin og mýkir jarðveginn – útsæðið spírar og vex!

10 Hjarðirnar liðast um hagana og dalirnir fyllast af korni. Allt fagnar og syngur!