Sálmarnir

Chapter 8

1 Þú hefur kennt börnum að lofsyngja þér. Fyrirmynd þeirra og vitnisburður þaggi niður í óvinum þínum og valdi þeim skömm.

2 Þegar ég horfi á himininn og skoða verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar sem þú hefur skapað –

3 þá undrast ég að þú skulir minnast mannsins, láta þér umhugað um mannanna börn.

4 Og líka, að þú lést manninn verða litlu minni en Guð! Krýndir hann sæmd og heiðri!

5 Þú hefur sett hann yfir allt sem þú hefur skapað, allt er honum undirgefið:

6 Uxar og allur annar fénaður, villidýrin

7 fuglar og fiskar, já, allt sem í sjónum syndir.

8 Ó, Drottinn Guð, hversu dýrlegt er nafn þitt um alla jörðina!