Chapter 45
1 Þú ert fegurri en mannanna börn. Blessun streymir um varir þínar. Velþóknun Guðs er yfir þér að eilífu.
2 Þú hetja, tak herklæði þín, máttugur ertu og krýndur ljóma
3 Sæktu fram! Sigursæll ertu, vörður tryggðar og réttlætis. Gakk fram – máttarverk þín verði á allra vörum!
4 Örvar þínar eru hvesstar, óvinir falla að fótum þér.
5 Hásæti þitt, ó Guð, stendur um eilífð. Réttlætið er sproti þinn.
6 Þú elskar hið góða hefur andstyggð á illsku. Því hefur Guð, þinn Guð, sveipað þig gleði sem engan annan.
7 Skikkja þín ilmar af myrru, alóe og kassíu. Hallir þínar eru skreyttar fílabeini og fyllast af ljúfum tónum.
8 Konungadætur eru í hópi vinkvenna þinna. Drottningin stendur þér við hlið, fagurlega klædd og skreytt skíra gulli frá Ófír!
9 Íbúar Týrus, baða þig í gjöfum og auðmenn þjóðarinnar leita hylli þinnar."
10 Brúðurin – konungsdóttir – bíður í skrauthýsi sínu, íklædd fegursta djásni, kjól skreyttum gulli og perlum.
11 Fögur er hún! Meyjarnar leiða hana á fund konungs.
12 Þær fara í skrúðgöngu gegnum hliðið. Þarna er höllin!
13 „Synir þínir verða allir konungar og feta í fótspor föður síns. Þeir munu sitja á hásætum víðs vegar um heim!"
14 „Ég mun gera nafn þitt kunnugt meðal allra kynslóða og þjóðir jarðarinnar munu hylla þig að eilífu."
