Chapter 64
1 Orð þeirra eru eins og rýtingur í bakið. Þeir hvæsa á mig og nísta hjarta mitt.
2 Þeir upphugsa ill verk og segja „Nú er allt klappað og klárt!" Hjörtu þeirra fyllast illsku og svikum.
3 En Guð mun slá þá til jarðar. Eins og hendi sé veifað hittir örin þá
4 Tunga þeirra verður þeim að falli. Menn hrista höfuðið yfir þeim og
5 ótta slær á alla. Þeir játa mikilleik Guðs og hans voldugu verk, gefa gætur að því sem hann gerir.
6 En hinir trúuðu munu fagna í Drottni, leita hjálpar hans og hrósa sigri með honum.
