Chapter 122
1 Ég varð glaður þegar sagt var við mig: „Komdu! Förum í musterið, hús Drottins!"
2 Allur Ísrael – þjóð Drottins – er kominn til að tilbiðja og lofa Drottin samkvæmt reglu lögmálsins.
3 Sjáið! Þarna eru dómararnir í borgarhliðinu, þeir skera úr deilumálum fólksins.
4 Biðjið þess að friður haldist í Jerúsalem og að þeir sem hana elska njóti heilla og hamingju.
5 Ég bið að friður ríki umhverfis þig og hagsæld sé í höllum þínum,
6 já, vegna bræðra minna og vina sem hér búa.
7 Ég bið um hamingju þér til handa, Jerúsalem, vegna musteris Drottins sem í þér er.
