Sálmarnir

Chapter 129

1 Allt frá bernsku var ég ofsóttur (það er Ísrael sem talar)

2 og misréttinu linnti ekki – en aldrei var ég þurrkaður út. Aldrei hefur óvinum mínum tekist að uppræta mig!

3 Þeir sem hata Jerúsalem skulu verða til skammar og flýja.

4 Þeir sem framhjá fara skulu ekki óska þér blessunar. En við ykkur segjum við: „Drottinn blessi þig!"