Chapter 29
1 Þið englar Drottins, lofið hann í mætti hans og dýrð!
2 Lofið hann í mikilleik dýrðar hans, þeirri dýrð er stafar af nafni hans. Tilbiðjið hann í helgum skrúða.
3 Raust Drottins fyllir himininn, hún kveður við eins og þruma!
4 Rödd hans hljómar kröftuglega, hún hljómar af mikilleik og tign.
5 Raust Drottins skekur skógartrén, feykir burt laufi þeirra og lætur hindirnar bera fyrir tímann. Allir þeir sem standa í helgidómi hans segja: „Dýrð! Já, dýrð sé Drottni!"
6 Flóðið mikla var ógurlegt, en Drottinn er enn meiri! Og enn birtir hann mátt sinn og kraft.
7 Hann mun veita lýð sínum styrkleik og blessa hann með friði og velgengni.
