Sálmarnir

Chapter 146

1 Dýrð sé Guði! Já, ég vil vegsama hann!

2 Ég vil lofa hann á meðan ég lifi, vegsama hann fram á síðustu stund.

3 Reiddu þig ekki á hjálp valdsmanna, því að þeir falla og ekkert verður úr aðstoð þeirra.

4 Þeir munu deyja og andi þeirra líður burt, áform þeirra verða að engu.

5 En sæll er sá maður sem reiðir sig á hjálp Guðs, Guðs Jakobs, sem vonar á Drottin, Guð sinn

6 – þann Guð sem skapaði himin og jörð og hafið og allt sem í því er. Hann er sá Guð sem óhætt er að treysta!

7 Hann leitar réttar fátækra og kúgaðra og gefur hungruðum brauð. Hann frelsar fanga,

8 opnar augu blindra, lyftir okinu af þeim sem eru að bugast. Drottinn elskar þá sem gera rétt.

9 Hann verndar útlendingana sem sest hafa að í landinu og gætir réttinda ekkna og einstæðinga, en ónýtir ráðabrugg vondra manna.

10 Drottinn mun ríkja að eilífu. Jerúsalem, veistu að Drottinn er konungur að eilífu?! Hallelúja!