Chapter 32
1 Sú var tíðin að ég þrjóskaðist við og neitaði að iðrast. En synd mín kvaldi mig og nagaði öllum stundum.
2 Ég var friðlaus bæði nætur og daga og fann að Drottinn áminnti mig. Styrkur minn þvarr eins og lækur sem þornar á heitu sumri.
3 Að lokum játaði ég synd mína fyrir þér, viðurkenndi afbrotin. Ég sagði: „Ég vil játa það allt fyrir Drottni," og þá fyrirgafstu mér! Sekt mín var strikuð út!
4 Þess vegna segi ég: Þú sem trúir, játaðu synd þína strax fyrir Guði, já, strax og samviskan angrar þig. Notaðu tímann meðan fyrirgefning Guðs stendur þér til boða. Annars vofir dómurinn yfir þér.
5 Þú ert skjól mitt í andstreymi lífsins og lausn í nauðum og vanda. Með frelsisfögnuði umlykur þú mig.
6 Drottinn segir: „Ég vil fræða þig og vísa þér veginn gegnum lífið. Ég vil gefa þér ráð og fylgjast með framför þinni.
7 Vertu ekki eins og þrjóskur hestur! Með taum og beisli verður að temja hann."
8 Miklar eru þjáningar syndugs manns, en þá sem treysta Drottni umlykur hann elsku.
9 Gleðjist yfir Guði, þið sem á hann trúið, og rekið upp fagnaðaróp, þið sem honum hlýðið!
