Chapter 121
1 Ég horfi til fjallanna, þar sem Jerúsalem rís. Hvaðan skyldi ég fá hjálp?
2 Hjálp mín kemur frá Drottni, skapara himins og jarðar!
3 Sjálfur Drottinn gætir þín! Hugleiddu það! Hann verndar þig gegn öllu illu og er þér alltaf nær.
4 Hann verndar þig jafnt daga sem nætur.
5 Hann frelsar þig frá illu og heldur í þér lífinu.
6 Hann hefur augun á þér hvort sem þú gengur út eða inn, já hann varðveitir þig alla daga og að eilífu.
