Sálmarnir

Chapter 33

1 Gleðjist og fagnið fyrir Drottni, þið hans trúuðu, því að lofsöngur hæfir réttlátum!

2 Leikið af þrótti á alls konar hljóðfæri og lofið Drottin.

3 Lofsyngið honum með nýjum söngvum. Sláið strengina ákaft og hrópið fagnaðaróp!

4 Því að orð Drottins er áreiðanlegt – því má treysta. Öll hans verk eru í trúfesti gjörð.

5 Hann elskar allt sem rétt er og gott, kærleikur hans umvefur heiminn.

6 Allir heimsbúar – bæði háir og lágir – óttist Drottin, og nálgist hann með lotningu.

7 Því að hann talaði og þá stóð heimurinn þar! Orð hans hljómaði og veröldin varð til!

8 Drottinn ónýtir áform þjóða sem gegn honum rísa

9 en fyrirætlanir hans standa að eilífu, frá kynslóð til kynslóðar.

10 Sæl er sú þjóð sem á Drottin að Guði, það fólk sem hann hefur kosið eignarlýð sinn.

11 Ég hef sett traust mitt á Drottin. Enginn getur hjálpað nema hann, hann er skjöldur og vígi!

12 Hans vegna gleðjumst við og fögnum. Hans heilaga nafni treystum við.

13 Miskunn þín Drottinn umvefji okkur. Við vonum á þig.