Sálmarnir

Chapter 13

1 Hve lengi verð ég að byrgja inni angist mína? Hve lengi eiga óvinir mínir að hreykja sér upp yfir mig?

2 Svara mér Drottinn, Guð minn, og sendu mér ljós þitt, annars er úti um mig!

3 Þaggaðu niður í óvinum mínum sem segja: „Við höfum sigrað hann!" Láttu þá ekki hlakka yfir því að ógæfa hendi mig.

4 En, – ég mun treysta þér og miskunn þinni hvað sem á gengur og fagna yfir hjálp þinni!

5 Ég vil lofsyngja Drottni, því að ríkulega blessaði hann mig.