Chapter 140
1 sem sitja á svikráðum alla daga og vekja ófrið.
2 Orð þeirra eru eins og eitruð höggormsbit.
3 Varðveittu mig gegn ofbeldi þeirra og svikráðum.
4 Þessir ofríkismenn hafa lagt gildru fyrir mig, sett út snöru sína. Þeir bíða þess að geta kastað yfir mig neti, flækja mig í möskva sína.
5 Láttu þá ekki ná árangri eða hreykja sér hátt.
6 Svikráð þeirra komi þeim sjálfum í koll!
7 Eldsglóðum rigni yfir þá. Steyptu þeim í gjár sem þeir komast ekki úr.
8 Láttu lygara einskis ávinnings njóta í landi okkar, en refsaðu þeim í skyndi.
9 Drottinn mun örugglega rétta hlut fólks sem þolað hefur ofsóknir þeirra, hann mun flytja mál hinna snauðu.
10 Hinir guðhræddu þakka þér. Þeir fá að lifa í nálægð þinni.
