Chapter 4
1 Drottinn Guð spyr: „Þið mannanna börn, ætlið þið endalaust að vanhelga nafn mitt með því að tilbiðja þessa heimskulegu hjáguði? Vitið þið ekki að heiður þeirra er bull og hégómi?"
2 Takið eftir: Drottinn hefur sýnt mér mikla náð og hann mun hlusta og svara mér þegar ég kalla.
3 Sýnið Drottni óttablandna lotningu og syndgið ekki gegn honum. Hugsið um þetta í hvílum ykkar og verið þögul.
4 Setjið traust ykkar á Drottin, og færið honum þóknanlegar fórnir.
5 Margir spyrja hvar hjálp sé að fá. Drottinn, þú ert sá sem hjálpar. Láttu ljós þitt lýsa okkur.
6 Gleðin sem þú hefur veitt mér er mun meiri en þeirra sem gleðjast yfir ríkulegri uppskeru.
7 Nú leggst ég til hvíldar í friði og sofna, því þú, Drottinn verndar mig gegn öllu illu.
