Sálmarnir

Chapter 36

1 Syndin dregur hann á tálar, mistök hans verða augljós og menn hata hann.

2 Svik og tál eru á vörum hans og hann er hættur að vera hygginn og breyta vel.

3 Á nóttunni liggur hann í rúmi sínu og upphugsar svik, forðast ekki hið illa.

4 Drottinn, miskunn þín er mikil eins og himinninn og trúfesti þín takmarkalaus.

5 Réttlæti þitt er stöðugt eins og fjöllin. Dómar þínir hvíla á vísdómi, þeir vitna um mikilleik þinn líkt og úthöfin. Þú berð umhyggju fyrir mönnum og skepnum.

6 Hversu dýrmæt er miskunn þín ó, Guð! Mennirnir leita skjóls í skugga vængja þinna.

7 Þú nærir þá með krásum af borði þínu og lætur þá drekka úr lækjum unaðssemda þinna.

8 Þú, Drottinn, ert uppspretta lífsins! í þínu ljósi sjáum við ljós.

9 Lát miskunn þína haldast við þá sem þekkja þig og réttlæti þitt við þá sem hlýða þér og elska.

10 Lát ekki fót hins hrokafulla troða á mér né hendur óguðlegra hrekja mig burt.

11 Líttu á! Illgjörðamennirnir eru fallnir! Þeim hefur verið varpað um koll og þeir megna ekki að rísa upp aftur.