Sálmarnir

Chapter 19

1 Dagur og nótt vitna um vísdóm Drottins.

2 Hnarreist siglir hún yfir hvolfið, geislandi eins og brúður í brúðkaupi eða hlaupari sem hlakkar til að renna sitt skeið.

3 Sólin fer um himininn frá austri til vesturs, ekkert fær dulist við geislaflóð hennar og yl.

4 Lög Guðs eru eilíf, réttlát og hrein.

5 Þau eru dýrmætari en gull. Þau eru sætari en hunang.

6 Því að þau vara okkur við hættum og efla velgengni þeirra sem hlýða þeim.

7 Hver verður var við syndina sem loðir við hjarta mitt? Hreinsa mig af leyndum syndum.

8 Forða mér frá vondum mönnum, og stöðva hönd mína að ég geri ekkert ljótt. Sýknaðu mig af syndum mínum svo að ég lifi hreinu lífi.

9 Ó, að orðin á vörum mér og hugsanir mínar geðjist þér, þú Guð, klettur minn og frelsari.