Sálmarnir

Chapter 62

1 Hann einn er bjarg mitt og lausnari, vörn mín og vígi. Ég hef ekkert að óttast.

2 En ég stend þögull frammi fyrir fyrir Drottni og vænti hjálpar hans. Hann einn getur hjálpað.

3 Já, hann einn er bjarg mitt, og lausnari, vörn mín og vígi. Ég hef ekkert að óttast.

4 Öryggi mitt og farsæld er í hendi Drottins. Hann einn er skjól mitt og klettur – þangað kemst óvinurinn ekki!

5 Þú þjóð mín, treystu Drottni. Segið honum óskir ykkar, hann getur uppfyllt þær!

6 Mennirnir miklast og hrokast í hégóma sínum. Einn þykist öðrum meiri, en hann metur alla jafnt.

7 Já, hjá þér Drottinn, er miskunn og þú launar sérhverjum eftir verkum hans.