Sálmarnir

Chapter 42

1 Mig þyrstir eftir Guði, hinum lifandi Guði. Hvenær fæ ég að koma og standa frammi fyrir honum?

2 Daga og nætur leita ég hans grátandi, en óvinir mínir spotta mig og segja: „Hvar skyldi Guð þinn vera?!"

3 Ég er dapur og stúrinn, en samt vil ég hugsa um þig hér við fjöllin Misar og Hermon þar sem Jórdan streymir fram.

4 Bylgjur þínar hafa brotnað á mér og fossar þínir baðað mig í sorg.

5 En þó streymir náð Drottins til mín dag eftir dag og um nætur lofa ég hann og bið til Guðs sem gaf mér lífið.

6 Ég bið og segi: „Ó, þú Guð, klettur minn." „Hvers vegna hefur þú yfirgefið mig? Hvers vegna verð ég að þola árásir óvina minna?"

7 Mig svíður undan ögrunum þeirra og aftur og aftur gera þeir gys að mér. „Hvar er þessi Guð þinn?!" segja þeir.

8 En sál mín, misstu ekki móðinn. Láttu þér ekki gremjast það. Vonaðu á Guð. Já ég veit að hann mun hjálpa mér og þá mun ég lofa hann fyrir allt það sem hann gerir. Hann er björgun mín! Hann er minn Guð!